Fá tilboð
Skoða verkefnamöppuna okkar

Sérhannaðar vefsíður / netverslanir

 
Þarftu sérhannaða síðu en heldur að það kosti fleiri hundruð þúsund að láta sérhanna og forrita þannig síðu? Það getur vel verið að það sé þannig einhversstaðar en hjá Smartmedia er það ekki þannig. Okkar mottó er ekki borga of mikið!

Hafðu samband við okkur og leyfðu okkur gefa þér tilboð í sérhannaða síðu sem inniheldur þau kerfi sem að við teljum að þú þurfið miðað við þínar hugmyndir. Í dag eru fjölmargir viðskiptavinir Smartmedia sem hafa valið þá leið að láta okkur sérhanna síðu og við viljum bæta þér í þann hóp.
Ekki hika við að hafa samband því þú tapar ekki á því að fá tilboð þér að kostnaðarlausu.
 
 
Vefstjóri
Íslenskt viðmót með vefstjóra. Í vefstjóranum eru stofnaðar yfirsíður, undirsíður, settur inn texti/upplýsingar um þjónustu/fyrirtækið svo eitthvað sé nefnt. Í vefstjóranum geturðu t.d. sett in tengla auðveldlega, sett inn myndbönd frá youtube (embedded media) ofl.
Fréttakerfi
Í fréttakerfinu er hægt að skrifa fréttir, setja mynd með, dagsetja fréttir (t.d. fram í tímann). Fréttaskrif eru mjög öflugt tól til að halda vefsíðunni/heimasíðunni þinni ferskri og lifandi.
Skráarstjóri
Í skráarstjóranum getur þú sett inn öll þau skjöl sem þú vilt geyma eða gefa öðrum aðgang að. Þá erum við að tala um skjöl eins og word,excel,pdf og svo framvegis. Öll skjöl í skráarstjóranum geturðu svo tengt (linkað) við texta á heimasíðunni.
Myndakerfi
Í myndakerfi getur þú stofnað möppur undir þín myndasöfn. Mjög auðvelt er að hlaða inn t.d. miklu magni af myndum með einu músarklikki (CTRL + A) og kerfið sér um að dæla myndunum inn. Þú getur svo valið hvaða myndasöfn eiga að birtast á heimasíðunni.
Teljari
Teljarinn er mikilvægt tól sem hjálpar þér að sjá hversu margar heimsóknir þú færð, hvaða síður eru skoðaðar, frá hvaða landi viðkomandi kemur og margt fleirra. Í Smartwebber vefumsjónarkerfinu geturðu t.d. sett sjálfur inn teljara kóða frá google analytics.
1 gb pláss f. Zimbra tölvupóst
Zimbra tölvupóstkerfið er fjarvinnslupóstur ekki ósvipaður og Microsoft Exchange. Í honum geturðu komist í póstinn þinn hvar sem er og hvenær sem er. Tekið er tvöfalt afrit af póstinum á hverri nóttu þannig að enginn póstur ætti að glatast ef að t.d. tölvan þín hrynur eða henni stolið. Hægt er að lesa meira um eiginleika Zimbru hér.
1 gb hýsing á léni
Allir okkar netþjónar eru hýstir á Íslandi í sérútbúnum vélarsal með varaflgjafa og tvöföldu kælikerfi.
Vöru- og pantanakerfi
Í vörukerfinu geturðu sett inn vörur, gefið þeim nafn,vörunúmer, sett verð,mynd, staðsett vöru innan vöruflokks (hvort að hún birtist ofarlega/neðarlega) einnig er hægt að setja eldra verð á vörur og gera þær þannig að tilboðsvöru. Hægt er að stofna vörur án þess að birta þær strax og taka vörur úr birtingu. Pantanakerfið heldur utan um allar gerðar pantanir á heimasíðunni, þegar að viðskiptavinur pantar vöru, þá fær hann email til staðfestingar á pöntun sinni ásamt því að þú færð líka pöntunina á emaili og pöntunin fer í inn í gagnagrunn vefumsjónarkerfisins og er alltaf aðgengilegt þar. Pantanakerfið gerir þér einnig kleift að halda utan um afgreiðsluferla á pöntunum hvort sem að þær séu greiddar og óafgreiddar, í vinnslu eða greiddar og afgreiddar. Svo er alltaf hægt að prenta út afrit af pöntunum.
 
      
 
Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar í síma 588 4100 eða með því að senda tölvupóst á info@smartmedia.is og við komum þér á netið á nokkrum dögum.
 
 
Smartmedia ehf | S: 588 4100 | info@smartmedia.is | www.smartmedia.is