Fá tilboð

Meðmæli frá viðskiptavinum Smartmedia

Hér fyrir neðan eru nokkur meðmæli sem við höfum fengið frá viðskiptavinum okkar:
 
 
 
Þegar við hjá Þekkingarsetri Vestmannaeyja látum hanna kynningarefni fyrir okkur, leitum við eftir aðilum sem standast kröfur okkar og viðskiptamanna okkar. Við leggjum áherslu á gæði hönnunar, verð og sveigjanleika. Þau verkefni sem Smartmedia hefur unnið fyrir okkur hafa öll staðist þessar kröfur og það hefur orðið til þess að við leitum til Smartmedia í æ ríkara mæli. Verkefnin eru orðin fjölmörg og má þar nefna heimasíður, kynnningarefni fyrir ráðstefnur og vörumerki fyrir ákveðin verkefni.

Páll Marvin Jónsson
 
Framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja
Einföld og auðveld lausn fyrir lítið fyrirtæki ásamt góðri og persónulegri þjónustu.

Hera Garðarsdóttir
framkvæmdarstjóri, Íslensk Fjallagrös ehf.
Þó að verðið skipti alltaf máli þá er það nú í raun aukaatriði þegar þú færð góða þjónustu. Hjá Smartmedia er góð þjónusta og gott verð. Þeir leysa líka málin fyrir þig fljótt. Ég er afskaplega ánægð með þá og mæli hiklaust með þeim.
 
 
Halla Margét
www.gleym-mer-ei.is
 
Sportverslun.is mælir með Smartmedia Smartmedia hefur reynst okkur mjög vel og eru mjög liðlegir og hafa upppfyllt allar okkar óskir á faglegan hátt
 
 
 
Egill
www.sportverslun.is
Smartmedia síðan okkar er frábært hugvit.  Það sem við þurftum var einfalt og gott umhverfi til að vinna í og það er það sem við fengum.  Þjónusta Smartmedia við okkur hefur verið einstök og við gefum þeim okkar hæstu einkunn.
 
 
 
Hilmar Hansson
Veiðiflugur.is
 
Við erum búin að vera hjá Smartmedia í rúmt ár, höfum alltaf fengið góða og snögga þjónustu. Miklir fagmenn. Mæli 100% með þeim!
 
Erna Arnardóttir
www.alltmerkilegt.is
 
Ég er mjög ánægð með þá þjónustu og vörur sem ég hef fengið hjá Smartmedia, mæli hiklaust með þeim!
 
Heiðrún Villa
www.sappo.is
 
Þjónustan hjá Smartmedia er til algjörrar fyrirmyndar. Mjög einfalt og þægilegt kerfi sem virkar vel og lítur vel út. Ódýr og góð lausn sem hentar fyrirtækjum eins og okkur.
 
Rakel Hlín
www.fidrildid.is
 
Mig langaði fyrir hönd Hreinsis ehf að þakka fyrir frábæra vöru og góða þjónustu. Áður en við fengum heimasíðuna vorum við í miklum vandræðum með hvernig hægt væri að auglýsa okkur og vera sýnileg fyrir okkar viðskiptavinum. Kosnaðurinn var okkar helsta hindrun þ.e.a.s. verð og hýsing annara fyrirtækja var of dýr að okkar mati. En með tilkomu SmartMedia fundum við lausn til að koma vörum okkar og þjónustu á framfæri með lítilli fyrirhöfn og litlum kosnaði.
 
Eiður Valdemarsson
Framkvæmdastjóri
 
Mín reynsla af ykkar þjónustu er frábær, hröð og persónuleg þjónusta, aldrei hef ég lent í því ef vandamál hefur komið upp á hjá mér alveg sama hversu lítið eða stórt það er, þá er því reddað um leið. Síðan og vörukerfið er líka gott og þægilegt í notkun.
 
Berglind
www.ziva.is
Framúrskarandi fyrirtæki með góðar vörur og frábæra þjónustu!


Aðalsteinn Jóhannsson
www.xrally.is
 
 
“ Við hjá Harðviðarvali leituðum til Smart media með prenthönnun og þeir stóðust klárlega væntingar okkar. Þar fer saman gott verð, fagmennska og einstaklega gott viðmót ”
 
Björn Matthíasson
Sölu -og markaðsstjóri
Harðviðarval
„Við hjá Stöð 2 höfum leitað til SmartMedia um nokkurt skeið með hönnun á öllum netbannerum fyrir okkar sjónvarpsstöðvar ásamt öðrum verkefnum. Hröð þjónusta, sköpunargleði og gæði gerir Smart Media vel samkeppnishæfa á þessum markaði auk þess sem verðin eru mjög sanngjörn."
 
Jóhannes Egilsson
Markaðsstjóri Stöðvar 2
Smartmedia býður uppá góða þjónustu, sveigjanleika og viðbragðsflýti, og í okkar umhverfi er slíkt lykilatriði. Það er því engin tilviljun að Smartmedia sér um hýsingu, vefhönnun og grafíska hönnun fyrir BT.

 Rúnar Rafnsson
Rekstrarstjóri BT
„Við leituðum til SmartMedia með vefsíðuna www.ga.is og fengum frábært verð og þjónustu hjá strákunum og erum við og viðskiptavinir okkar ánægð með árangurinn“
 
Anna Jóhanna Guðmundsdóttir
forstjóri Guðmundar Arasonar ehf.
www.ga.is
Við hjá Karfan.is höfum nýverið hafið viðskipti við Smartmedia varðandi hýsingu og vinnslu síðu okkar í Smartwebber vef umsjónaforritinu. Smartwebber hefur svo sannarlega verið bylting fyrir okkar vinnslu á fréttum, myndum og myndböndum. Það sem hefur hinsvegar skipt okkur meira máli er sú framúrskarandi þjónusta sem starfmenn Smartmedia hafa veitt okkur. Þjónustustig þeirra pilta er í hæsta gæðaflokki á mjög svo sanngjörnu verði !
 
Skúli Sigurðsson
Tæknistjóri Karfan.is
Við fengum góða og aðgengilega vefsíðu með einföldu og þægilegu vefumsjónarkerfi á mjög fínu verði. Við mælum hiklaust með "SmartWebber light" lausninni þeirra, hún fellur afar vel að starfsumhverfi okkar.“
 
 Aðalgeir Hólmsteinsson
Framkvæmdastjóri Al-verk ehf.
www.alverk.is
„Við Hjá SB Skiltagerð erum mjög ánægðir með þjónustuna sem við fengum og mælum því hiklaust með SmartMedia. Þjónustan og verðið hjá þeim er til fyrirmyndar.“
 
Smári Birnir Smárason
Framkvæmdastjóri SB Skiltagerð ehf. Þorlákshöfn
www.sbskilti.is
Smartmedia ehf | Síðumúla 25 (3hæð),108 Reykjavík & Heiðarvegi 9, 900 Vestmannaeyjar | S: 588 4100 | info@smartmedia.is | www.smartmedia.is