Fá tilboð
Skoða verkefnamöppuna okkar

Staðlaðar vefsíður - Vefsíður án stofngjalds

Smartmedia light lausnin er ódýr og einföld lausn sem virkar vel enda eru fjölmargar vefsíður sem keyra í dag á þessari lausn. Við bjóðum þér heimasíðu með íslensku vefumsjónarkerfi, hýsingu á léni og tölvupósti án stofngjalds, þ.e.a.s. að þú leggur 0. kr út. Þú einfaldlega skuldbindur þig til að vera hjá okkur í 18 mánuði og greiðir aðeins 4.990 m/vsk f. það.

Svona virkar þetta, þú velur þér eitt af okkar fjölmörgu stöðluðu útlitum, sendir okkur myndir/logo og óskir um litasamsetningu. Við setjum hönnuðinn okkar í málið og hann kemur með tillögu að útlitinu sem þú svo samþykkir eða kommentar á. Þegar það ferli er búið tengjum við útlitið við vefumsjónarkerfið og setjuð vefsíðuna upp á þínu léni.
 
Vefstjóri
Íslenskt viðmót með vefstjóra. Í vefstjóranum eru stofnaðar yfirsíður, undirsíður, settur inn texti/upplýsingar um þjónustu/fyrirtækið svo eitthvað sé nefnt. Í vefstjóranum geturðu t.d. sett in tengla auðveldlega, sett inn myndbönd frá youtube (embedded media) ofl.
Fréttakerfi
Í fréttakerfinu er hægt að skrifa fréttir, setja mynd með, dagsetja fréttir (t.d. fram í tímann). Fréttaskrif eru mjög öflugt tól til að halda vefsíðunni/heimasíðunni þinni ferskri og lifandi.
Skráarstjóri
Í skráarstjóranum getur þú sett inn öll þau skjöl sem þú vilt geyma eða gefa öðrum aðgang að. Þá erum við að tala um skjöl eins og word,excel,pdf og svo framvegis. Öll skjöl í skráarstjóranum geturðu svo tengt (linkað) við texta á heimasíðunni.
Myndakerfi
Í myndakerfi getur þú stofnað möppur undir þín myndasöfn. Mjög auðvelt er að hlaða inn t.d. miklu magni af myndum með einu músarklikki (CTRL + A) og kerfið sér um að dæla myndunum inn. Þú getur svo valið hvaða myndasöfn eiga að birtast á heimasíðunni.
Teljari
Teljarinn er mikilvægt tól sem hjálpar þér að sjá hversu margar heimsóknir þú færð, hvaða síður eru skoðaðar, frá hvaða landi viðkomandi kemur og margt fleirra. Í Smartwebber vefumsjónarkerfinu geturðu t.d. sett sjálfur inn teljara kóða frá google analytics.
250mb pláss f. Zimbra tölvupóst
Zimbra tölvupóstkerfið er fjarvinnslupóstur ekki ósvipaður og Microsoft Exchange. Í honum geturðu komist í póstinn þinn hvar sem er og hvenær sem er. Tekið er tvöfalt afrit af póstinum á hverri nóttu þannig að enginn póstur ætti að glatast ef að t.d. tölvan þín hrynur eða henni stolið. Hægt er að lesa meira um eiginleika Zimbru hér.
500 mb hýsing á léni
Allir okkar netþjónar eru hýstir á Íslandi í sérútbúnum vélarsal með varaflgjafa og tvöföldu kælikerfi.
 
      
 
Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar í síma 588 4100 eða með því að senda tölvupóst á info@smartmedia.is
 
 
Smartmedia ehf | S: 588 4100 | info@smartmedia.is | www.smartmedia.is