Fá tilboð
Skoða verkefnamöppuna okkar

Leiðbeiningar fyrir SmartWebber vefumsjónarkerfið

 
Hér er hægt að ná í léttar leiðbeiningar fyrir SmartWebber light vefumsjónarkerfið
 
Hér er hægt að ná í léttar leiðbeiningar fyrir netverslunarhlutann af SmartWebber vefumsjónarkerfinu
 
Leiðbeiningar fyrir tölvupóst.
 
Leiðbeiningar til að setja upp Zimbra tölvupóst í outlook 2007
 
Til að fara inn á vefpóstinn f. Zimbra, ferðu inn hérna https://zimbra.smartmedia.is í notendanafnið seturðu emailið þitt og svo passwordið sem hefur verið stofnað fyrir þig.
 
Ef þú hefur áhuga á því að setja upp Zimbra Desktop sem er tölvupóstforrit, geturðu sótt það hér
 
Hér er hægt að ná í leiðbeiningar til að setja upp email í Outlook 2007
 
Til að fara inn á vefpóst, ferðu inn hérna, http://mail.smartmedia.is/mail/
í notendanafn seturðu emailið þitt og svo passwordið sem hefur verið stofnað fyrir þig.
 
Hjálparsíða fyrir cPanel
 
Farið er á slóðina: http://cpanel.léniðþitt.is. Skipt er út léniðþitt.is fyrir lénið. Þar þarf að innskrá sig með notandanafni og lykilorði. Þar er hægt að sjá forsíðu cPanels og alla möguleika og stillingar.
Stofna nýtt netfang
 
Inní "Mail" dálknum er smellt á "Email Accounts". Ef "Email Accounts" er ekki sjáanlegur á forsíðu er hægt að skrifa "Email Accounts" inní leitina sem er efst uppi til vinstri. Inní Email Accounts er hægt að skoða, stofna og eyða netföngum. Undir "Add a New Email Account" er skrifað inn netfang sem óskað er eftir. Þar fyrir aftan á að standa "@" og lénið þitt. Því næst er valið lykilorð, mælt er með að hafa 6 bók- og tölustafi. Mailbox quota segir til um hversu mikið pláss þetta póstfang á að hafa til geymslu pósta. Óþarfi er að breyta þessu. Því að lokum er smellt á "Create" og netfangið hefur verið stofnað.
 
Current Accounts segir til um öll þau netföng sem eru undir léninu þínu. Þar er hægt að skoða tölvupóstinn í gegnum vefviðmót með því að smellá myndina hjá "Access Webmail". Usage segir til um hversu mikið pláss er í notkun og Quota segir til um hversu mikið pláss er til staðar. Undir Functions er hægt að eyða (Delete), breyta plássstærð (Change Quota), breyta lykilorði (Change Password) og stilla póstforrit (Configure Mail Client).
 
Setja upp gagnagrunn
 
Hægt er að komast á forsíðu cPanels með því að smella á "Home" sem hægt er að finna efst uppi í vinstra horninu. 
 
Í "Databases" dálknum er hægt að stofna, breyta og eyða gagnagrunnum. Fyrst þarf að stofna gagnagrunn og notandi fyrir hann áður en hægt er að fara að nota hann. Smellt er á "MySQL@ Databases", þar er hægt að stofna nýjan gagnagrunn.
  
Skrifað er inn nafn á gagnagrunninum og smellt á "Create". Því næst þarf að setja notandi (User) á gagnagrunninn. Þá þarf fyrst að stofna nýjan notandi undir "MySQL Users" og "Add New User". Þar er sett inn notandanafn (Username), hámark 7 stafir. Lykilorð (Password) er valið fyrir notandan og það ritað inn tvisvar. Því næst þarf að smella á "Create User". Þá er bæði búið að stofna gagnagrunn og notanda en það þarf að tengja þetta tvennt saman. Þá er farið í "Add User To Database", þar er notandinn valinn og gagnagrunnurinn valinn og smellt á "Add". Ef allt hefur gengið upp á að standa undir "Current Databases" gagnagrunnsnafnið þitt, með léninu þínu á undan. (Þetta er gert til að aðskilja gagnagrunnana við hvern notanda). Stærð (Size) á gagnagrunninum og notandanafnið með léninu þínu á undan. Þá er gagnagrunnurinn kominn með notanda og hægt er að nota hann.
Nota phpMyAdmin fyrir gagnagrunn
 
Á forsíðu cPanels (hægt er að smella á "Home" sem er efst í vinstra horninu). Undir "Databases" er hægt að komast í phpMyAdmin. Þegar smellt á phpMyAdmin opnast nýr gluggi með gagnagrunninum. Efst uppi í vinstra horninum er að finna gagnagrunninn þinn með léninu þínu fyrir framan, (td. smartmed_smartmedia). Smellt er á það og þá opnast gagnagrunnurinn. Mælt er með því að hafa grunnþekkingu í gagnagrunnum til þess að nota phpMyAdmin.
 
Hér má nálgast forrit fyrir fjarþjónustu
 
Smartmedia ehf | S: 588 4100 | info@smartmedia.is | www.smartmedia.is