Vertu þinn eigin vefstjóri
- Skilvirkt bókunarkerfi
- Einfalt vefumsjónarkerfi
- Settu allt efni inn sjálf/ur á skilvirkan og einfaldan hátt
í bókunarkerfinu getur þú meðal annars:
- stofnað gistirými með mismunandi eiginleikum (t.d. sjónvarp, net)
- Skilgreint herbergi sem einstaklings eða fjölskylduherbergi
- Flokkað herbergin í grúppur, t.d. verið með eina skilgreiningu á 2ja manna herbergi en ert kannski með 12 svoleiðis herbergi í leigu
- Selt aukahluti eins og morgunmat og/eða barnarúm
- Boðið viðskiptavinum upp á að panta gistirými sem "uppábúið" eða "svefnpokaplás"
- Séð yfirlit um nýtingu á herbergjum ásamt söluskýrslu
- Skilgreint verð eftir tímabilum
- Séð yfirlit yfir pantanir í vefumsjónarkerfinu
- Gert eigin pantanir í vefusmjónarkerfinu
Okkar reynsla af bókunarsíðum er:
- Þú skapar meiri meðvitund um þína starfsemi
- Viðskiptavinurinn á auðveldara með að finna þig og ganga frá pöntun án þess að hringja í þig
- Færð meira af pöntunum og nýtir því gistirýmið betur
- Greiðslur eru öruggari, þ.e.a.s. ef notast er við kreditkortalausn
- Minna um afpantanir og forföll ef greitt er með kreditkorti
- Allar upplýsingar um gistiaðstöðu og aðra möguleika eru á heimasíðunni
- Mun minna áreiti á starfsfólk þar sem viðskiptavinir nota netið til að kynna sér málið og bóka
- Ef vafamál um endurgreiðslu kemur upp þá er alltaf hægt að vísa í skilmála á heimasíðunni sem að viðskiptavinur samþykkti og því oft hægt að leysa slík mál á mjög einfaldan og þægilegan hátt
Vissir þú að:
- 75% af pantaðri gistingu kemur í gegnum netið með einum eða öðrum hætti
- Að í hverjum mánuði eru gerðar 40.000 leitir á google um gistingu á Íslandi
- Að ein aukapöntun sem gæti komið með tilkomu bókunarkerfis á heimasíðu gæti borgað upp heilt ár í kostnaði við heimasíðuna og kerfið. Hefur þú efni á að sleppa þessu tilboði ?
Staðlaðar bókunarsíður - Bókunarsíða án stofngjalds - Tilvalið fyrir hótel, gistiheimili, sumarbústaði og alla sem leigja gistirými.
Smartmedia bókunarlausnin er ódýr og einföld lausn sem virkar.Við tökun enga þóknun af bókunum. Við bjóðum þér heimasíðu með íslensku vefumsjónarkerfi, hýsingu á léni og tölvupósti án stofngjalds, þ.e.a.s. að þú leggur 0. kr út (stofngjald var 69.990 + vsk). Þú einfaldlega skuldbindur þig til að vera hjá okkur í 18 mánuði og greiðir aðeins 4.990 m/vsk á mánuði fyrir það.
Svona virkar þetta, þú velur þér eitt af okkar fjölmörgu stöðluðu útlitum, sendir okkur myndir/logo og óskir um litasamsetningu. Við setjum hönnuðinn okkar í málið og hann kemur með tillögu að útlitinu sem þú svo samþykkir eða kommentar á. Þegar það ferli er búið tengjum við útlitið við vefumsjónarkerfið og setjuð vefsíðuna upp á þínu léni.
Vefstjóri
Í vefstjóranum sem er með íslenskt viðmót eru stofnaðar yfirsíður, undirsíður, settur inn texti/upplýsingar um þjónustu/fyrirtækið svo eitthvað sé nefnt. Í vefstjóranum geturðu t.d. sett in tengla auðveldlega, sett inn myndbönd frá youtube (embedded media) ofl.
Fréttakerfi
Í fréttakerfinu er hægt að skrifa fréttir, setja mynd með, dagsetja fréttir (t.d. fram í tímann). Fréttaskrif eru mjög öflugt tól til að halda vefsíðunni/heimasíðunni þinni ferskri og lifandi.
Skráarstjóri
Í skráarstjóranum getur þú sett inn öll þau skjöl sem þú vilt geyma eða gefa öðrum aðgang að. Þá erum við að tala um skjöl eins og word,excel,pdf og svo framvegis. Öll skjöl í skráarstjóranum geturðu svo tengt (linkað) við texta á heimasíðunni.
Myndakerfi
Í myndakerfi getur þú stofnað möppur undir þín myndasöfn. Mjög auðvelt er að hlaða inn t.d. miklu magni af myndum með einu músarklikki (CTRL + A) og kerfið sér um að dæla myndunum inn. Þú getur svo valið hvaða myndasöfn eiga að birtast á heimasíðunni.
Teljari
Teljarinn er mikilvægt tól sem hjálpar þér að sjá hversu margar heimsóknir þú færð, hvaða síður eru skoðaðar, frá hvaða landi viðkomandi kemur og margt fleirra. Í Smartwebber vefumsjónarkerfinu geturðu t.d. sett sjálfur inn teljara kóða frá google analytics.
250mb pláss f. Zimbra tölvupóst
Zimbra tölvupóstkerfið er fjarvinnslupóstur ekki ósvipaður og Microsoft Exchange. Í honum geturðu komist í póstinn þinn hvar sem er og hvenær sem er. Tekið er tvöfalt afrit af póstinum á hverri nóttu þannig að enginn póstur ætti að glatast ef að t.d. tölvan þín hrynur eða henni stolið. Hægt er að lesa meira um eiginleika Zimbru hér.
500 mb hýsing á léni
Allir okkar netþjónar eru hýstir á Íslandi í sérútbúnum vélarsal með varaflgjafa og tvöföldu kælikerfi.
Bókunar- og pantanakerfi
Í bókunar- og pantanakerfinu geturðu skilgreint gistirými með mismunandi þjónustum. Þannig getur þú valið um fríðindi eins og sjónvarp, netaðgengi og fleira. Hvert herbergi er stofnað með skilgreiningu um svefnaðstöðu hvort sem að það er einstakslingsherbergi eða fjölskylduherbergi, svo er auðvitað hægt að setja ljósmyndir með hverju stofnuðu herbergi. Eftir að allt gistirými hefur verið skilgreint getur viðskiptavinur skoðað og pantað þau herbergi sem eru í boði. Bókunarkerfið heldur svo utan um allar bókanir/pantanir sem gerðar eru á hvert herbergi og lokar þannig fyrir bókanir á herbergi sem eru upptekinn. Auðvelt er að skoða yfirlit yfir pantanir og gera eigin pöntun í kerfinu.
Meðal nýrra aðgerða í bókunarkerfinu þá er hægt að skilgreina verð eftir tímabilum langt fram í tímann, einnig er hægt að selja "aukahluti" með hverju herbergi eins og morgunmat, barnarúm ofl.
Meðal nýrra aðgerða í bókunarkerfinu þá er hægt að skilgreina verð eftir tímabilum langt fram í tímann, einnig er hægt að selja "aukahluti" með hverju herbergi eins og morgunmat, barnarúm ofl.
Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar í síma 588 4100 eða með því að senda tölvupóst á info@smartmedia.is og við komum þér á netið á nokkrum dögum.












