Fá tilboð
23. desember 2011

Opnunartími yfir hátíðarnar

24.12 Lokað    25.12 Lokað
26.12 Lokað    27.12 Opið
28.12 Opið      29.12 Opið
30.12 Opið      31.12 Lokað
01.01 Lokað    02.01 Opið
 
Hægt er að ná í okkur með að senda tölvupóst á info@smartmedia.is
nánar »
23. desember 2011

Gleðileg Jól

Við óskum viðskiptavinum og landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum fyrir viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða.

Kveðja
 Starfsmenn og eigendur Smartmedia
nánar »
22. desember 2011

nánar »
12. desember 2011

ISNIC lækkar ársgjald af lénum um 1000 krónur

Stjórn ISNIC samþykkti nýlega eittþúsund króna lækkun á árgjaldi .is-léna. Nýtt og lækkað árgjald léna verður kr. 6.982 m/vsk. Lækkunin gildir frá og með 11. desember.
 
Ef þú hefur ekki skráð lén áður þarftu fyrst að skrá þig hér og fá þannig aðgang að lénaskráningu ISNIC. Skráning léns er á allra færi. Biðsvæði er frí þjónusta og sjálfvalið ef þú ert ekki tilbúinn að virkja lénið.
nánar »
27. júlí 2011

Þjóðhátíðardagskrá 2011 kemur beint í tjaldið í boði Smartmedia

Síðustu 2 ár hafa starfsmenn Smartmedia prentað út og plastað dagskrá Þjóðhátíðarinn og dreift í öll Þjóðhátíðartjöldin (hvítu tjöldin) og við munum endurtaka leikinn í ár. Smartmedia hefur prentað og plastað 400 eintök af dagskránni og verður henni dreift í tjöldin á föstudag. Ef afgangur verður á dagskránni verður restinni dreift í sjoppurnar og veitingatjaldið.
 
Með dagskránni langar Smartmedia að óska eyjamönnum og öðrum þjóðhátíðargestum gleðilegrar þjóðhátíðar.
 
Hægt er að nálgast dagskránna á pdf formi hér.
nánar »
20. júní 2011

Leitarvélabestun - SEO

Leitavélabestun (Search Engine Optimization, SEO) er ein árangursríkasta leiðin til þess að bæta sýnileika á þeirri vörur og þjónustu sem fyrirtæki hafa uppá að bjóða. Leitarvélabestun felst í því að bæta stöðu vefsíðu gagnvart leitarvélum þannig að hún komist ofarlega á lista við t.d. leit á google.
 
Smartmedia býður upp á leitarvélabestun sem skilar árangri. Höfum nú þegar hjálpað fjölmörgum viðskiptavinum að komast hærra á leitarvélunum. Hér geturðu lesið nánar um leitarvélabestun Smartmedia.
 
Ef þú hefur áhuga á að bæta sýnileika á netinu sendu okkur línu á seo@smartmedia.is eða hringdu í 588 4100.
nánar »
25. maí 2011

Sadcars - Iceland car rental

www.sadcars.com opnaði nýjan vef í dag.  Sadcars er í dag ein öflugasta bílaleiga landsins í dag og þeir keyra sinn vef á öflugu og fullkomnu bílabókunarkerfi sem er sérsmíðað af starfsmönnum Smartmedia með þarfir bílaleiga í huga. Hægt er að lesa nánar um bílabókunarkerfið hér
 
nánar »
17. maí 2011

Smartmedia opnar skrifstofu í Síðumúlanum

Smartmedia hefur nú opnað skrifstofu í Reykjavík. Skrifstofan er staðsett í Síðumúla 25, 108 rvk.
 
Smartmedia sérhæfir sig í vefsíðugerð og auglýsingahönnun fyrir fyrirtæki, einstaklinga og félagasamtök og því eru allir velkomnir á nýju skrifstofuna okkar þar sem að Halldór Örn margmiðlunarhönnuður tekur vel á móti núverandi og nýjum viðskiptavinum.
nánar »
28. júlí 2010

Smartmedia færir þér þjóðhátíðardagskrána í tjaldið

Á síðasta ári tóku starfsmenn Smartmedia sig til og prentuðu út og plöstuðu dagskrá Þjóðhátíðarinnar og dreifðu í öll þjóðhátíðartjöldin í Herjólfsdal. Hlaut þetta framtak góð viðbrögð enda gott að eiga dagskránna plastaða og fína í tjaldinu.
nánar »
18. júní 2010

Smartmedia gefur Þorvaldseyri vefsíðu

Þann 17.júní síðastliðin opnaði vefsíðan Þorvaldseyri.is og er hún frétta- og upplýsingasíða um bæinn Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Smartmedia gaf ábúendum á Þorvaldseyri alla vinnu við vefsíðuna í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Fylgist með fréttum og gangi mála á bænum á www.Þorvaldseyri.is
nánar »
Eldri
Smartmedia ehf | Síðumúla 25 (3hæð),108 Reykjavík & Heiðarvegi 9, 900 Vestmannaeyjar | S: 588 4100 | info@smartmedia.is | www.smartmedia.is