Fá tilboð
12. desember 2011

ISNIC lækkar ársgjald af lénum um 1000 krónur

Stjórn ISNIC samþykkti nýlega eittþúsund króna lækkun á árgjaldi .is-léna. Nýtt og lækkað árgjald léna verður kr. 6.982 m/vsk. Lækkunin gildir frá og með 11. desember.
 
Ef þú hefur ekki skráð lén áður þarftu fyrst að skrá þig hér og fá þannig aðgang að lénaskráningu ISNIC. Skráning léns er á allra færi. Biðsvæði er frí þjónusta og sjálfvalið ef þú ert ekki tilbúinn að virkja lénið.

Sé greitt með korti líða aðeins um 20 mínútur þar til lénið er orðið virkt. Því næst er að koma léninu í hýsingu hjá skráðum þjónustuaðilum ISNIC, sem uppfylla gæðakröfur ISNIC fyrir vistun .is léna, eða áframsenda það á gefna vefslóð, t.d. blogsíðu eða Facebook.
 
Notkun léna fyrir tölvupóstfang á eigið lén fer sífellt vaxandi, en gott og traust netfang (Email) er lykilatriði þegar byggja á upp trúverðugleika í netviðskiptum. Ár eftir ár hafa .is lén mælst á meðal traustustu og best upp settu léna í heimi eins og sjá má á bls. 13 í nýjustu skýrslu McAfee.
 
Mikilli fjölgun léna undanfarin ár gerir ISNIC kleift að lækka árgjaldið um ríflega 12%, þrátt fyrir miklar kostnaðarhækkanir frá árinu 2008. ISNIC vonast til þess að lækkunin stuðli að áframhaldandi fjölgun léna. Fjöldi .is-léna er nú rétt rúmlega 36.000 og hefur fjölgað um 100% frá því í ársbyrjun 2007.
 
25 ár eru liðin frá því fyrsta .is-lénið, hi.is, var skráð á Íslandi, en það var 11. desember 1986 eins og sjá má hér.
Til baka